Saturday, January 14, 2006

komin heim

þá er maður komin heim og að reyna að undirbúa það að byrja aftur að læra. ER EKKI AÐ NENNA ÞVÍ.
flaug til Stokkholms á fimmtudaginn og stoppaði þar í nokkra tíma, hafði ekkert sofið heima en náði að sofa yfir allt flugið.
Kom mér fyrir á sætu litlu kaffi húsi á drottningagötuinni, sat þar og fékk mér smá að boða og las, æðislegt að sitja þarna og upplifa ysið og þysið í kring, það er svo allt öðruvísi að sitja þarna heldur en á kaffi húsi hér í skövde.

Ég ætlaði að blogga meðan ég var heima en fyrir einhverja ástæðu þá gat ég ekki birt það sem ég skrifaði, sparaði það samt kannksi maður poti því inn á seinna heheh.

héldum partý í gær, sem var mjög gaman, Nim er hér í skövde yfir helgina og var æðislega gaman að djamma með genginu í gær.

Er heldur þreytt í dag en held maður fari samt að djamma smá heheh.

1 Comments:

At 9:19 PM, Blogger Magdalena said...

Verst að ég er flutt, annars hefði ég verið meira en lítið til í að sitja með þér á kaffihúsi í höfuðborginni :)

 

Post a Comment

<< Home